Ásgarðsskóli - Opið bréf til fulltrúa í skóla- og frístundaráði Reykjavíkurborgar
Kristrún Birgisdóttir • 1. apríl 2025
Í átta ár hefur skólastarf í Ásgarðsskóla - skóla í skýjunum verið í þróun. Árangurinn hefur verið frábær og vitnisburðir barna og aðstandenda þeirra einstaklega jákvæðir. Nú hefur Reykjavíkurborg einhliða og án nokkurs samráðs við Ásgarðsskóla ákveðið að beita sér gegn því að úrræðið fái að nýtast fleirum börnum í Reykjavík og hyggjast setja á fót sitt eigið.
Að þróa vel heppnaðan skóla á netinu er ekki kökugerð sem gripin er með forskrift sem fæst í tilbúnum, ódýrum pakka sem hægt er að grípa uppi á hillu. Vel heppnaður fjarskóli fyrir börn, sem kerfin okkar hafa brugðist eða búa við flókinn vanda, verður til á löngum tíma, með færustu sérfræðingum og hópi fólks sem brennur fyrir nýsköpun og hefur eldmóð og þor til þess að hugsa út fyrir kassann.
Ásgarðsskóli - skóli í skýjunum hefur verið í þróun sl. átta ár. Fyrstu nemendurnir voru nemendur í mjög fámennum skólum um landið og nemendur sem af fjölbreyttum ástæðum þurftu að stunda nám heima. Við einsettum okkur að átta okkur á þörfum nemendanna og finna leiðir til þess að mæta hverjum og einum á persónumiðaðan hátt, af skilningi og virðingu með því að fela þeim verkefni sem efldu þá hvern á sinn hátt án þess að gefa afslátt af kröfum aðalnámskrár.
Þróunarskólaleyfið fyrir Ásgarðsskóla var í vinnslu í tvö ár frá árinu 2019 til 2021. Gögnin sem fylgdu umsókninni voru ítarleg og töldu á þriðja hundrað blaðsíðna. Leyfið fékkst loksins haustið 2021 og þá innrituðust tveir nemendur, sá þriðji bættist við um haustið. Samhliða gerðum við tilraunir með valgreinaskóla í fjarkennslu sem var samstarfsverkefni níu grunnskóla í jafnmörgum sveitarfélögum, flókið verkefni sem gekk bæði vel og illa en er nú fyrst og fremst starfrækt innan Ásgarðsskóla. Síðustu fjögur árin höfum við sem stöndum að Ásgarðsskóla þróað Tungumálaskólann sem er metnaðarfullt fjarkennsluúrræði þar sem við kennum nemendum með norsku og sænsku að móðurmáli. Ásgarðsskóli óx á grunni þessari fjölbreyttu reynslu en að þróuninni stóð teymi sem samanstendur af tuttugu innlendum og erlendum sérfræðingum sem hafa komið að málinu á einn eða annan hátt. Samanlagt hefur þessi reynsla og sérþekking gert Ásgarðsskóla að traustu námsumhverfi fyrir viðkvæma nemendahópa.
Sérlega hefur verið vandað til með námskrána þar sem mjög fljótt kom á daginn að ríkjandi starfshættir henta þessum hópi nemenda engan veginn. Þess vegna var farin sú leið að fjárfesta verulega í ráðgjöf og aðgengi að erlendri námskrá frá Fieldwork education og þróa leiðir til að útfæra áherslur aðalnámskrár af sérstökum metnaði. Meginmarkmiðið var að finna leiðir til að mæta fjölbreyttum þörfum nemenda á framúrskarandi hátt. Dýrmætt var einnig samstarfið og ráðgjöfin frá Sophia High í London sem er virkur og vel heppnaður breskur fjarskóli fyrir börn frá 4 ára aldri. Allir kennarar í Ásgarðsskóla fá sérstaka þjálfun í starfsháttum við að koma til móts við fjölbreytileikann og beita þeim aðferðum sem reynsla okkar hefur sýnt að virki. Nú erum við með þrautþjálfaðan kennarahóp sem er farinn að hækka rána enn meira og starfshættir hópsins eru komnir langt fram úr þeim væntingum sem við sáum fyrir okkur í upphafi.
Á þriðja ári gerði mennta- og barnamálaráðuneytið úttekt á skólanum sem staðfestir að starfið í Ásgarðsskóla er vandað, þar er eftirtektarverð fagmennska í fyrirrúmi og nemendum mætt einstaklega vel. Umbótatillögur voru smávægilegar og hafa nú þegar verið uppfylltar. Kerfisbundið innra mat er í góðum farvegi og skólinn stendur fyrir lýðræðislegri samvinnu og samstarfi við foreldra sem hafa raunveruleg áhrif á alla þætti skólastarfsins, þar með talið útfærslur á námi og kennslu. Námsmat er gagnsætt, mjög reglulegt og unnið í samstarfi við nemendur og foreldrum sex sinnum á ári.
Reykjavíkurborg hefur verið stærsti viðskiptavinur okkar sl. þrjú ár og hefur treyst okkur fyrir dýrmætum hópi nemenda sem hefur átt það sameiginlegt að úrræði sveitarfélagsins varðandi skólagöngu þeirra hafa verið komin á endastöð. Þegar við stóðum frammi fyrir því að þurfa að framlengja þróunarskólaleyfið frá mennta- og barnamálaráðuneytinu sendi þáverandi sviðsstjóri skóla og frístundasviðs Reykjavíkurborgar ítarlegt bréf til ráðuneytisins þar sem hann lýsir þeim einstaka árangri sem Ásgarðsskóli hefur náð með þennan nemendahóp. Kannanir og samtöl við foreldra og nemendur staðfesta að langflestir hafa náð að fóta sig á ný og komið sér í félagslega virkni úti í samfélaginu, komist í framhaldsskóla þrátt fyrir að hafa verið búnir að missa trúna á skólagöngu og/eða fundið fjölina sína úti í samfélaginu. Mörg barnanna hafa fullyrt að skólinn hafi bjargað lífið þeirra og keppast um að segja frá því (sjá t.d. hér).
Í desember s.l. stóðu yfir viðræður Ásgarðsskóla við Reykjavíkurborg þar sem fyrirhugað var að semja um fjölda nemenda sem skólinn gæti tekið við á komandi skólaári og finna leiðir sem báðir aðilar gætu fellt sig við. Tafir urðu á viðræðum enda skipt um æðsta mann í brúnni í desember og nýr sviðsstjóri hóf ekki störf fyrr en í byrjun febrúar á þessu ári. Við komumst þá í samband við Stein Jóhannsson sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs sem óskaði eftir að fá meiri tíma til þess að fóta sig í nýju starfi áður en viðræður okkar héldu áfram. Það varð hins vegar ekkert af þessum viðræðum þar sem skóla- og frístundasvið hefur greinilega verið upptekið við undirbúning þess að koma á fót netskóla í einum af grunnskólum borgarinnar. Samkvæmt bókun skóla- og frístundasviðs er fyrirhugað að skólastarf hefjist strax í haust fyrir öll börn í Reykjavík sem talin eru þurfa þessa þjónustu.
Ég hef ekki allar forsendur til að leggja mat á hvernig ætlað er að koma upp umræddri starfsemi á svo stuttum tíma en til þess að koma á vel heppnuðu netúrræði er ekki nóg að kaupa áskrift að Zoom og hefjast handa. Tillaga Steins fyrir hönd sviðsins og greinargerð bendir til þess að fyrirhugað sé að fara kökugerðarleiðina. Verði það raunin, verður þá lagt af stað í vegferð sem getur ekki annað en verið óvönduð. Þróunarkostnaður við að teikna upp skólastarf sem fram fer í netheimum er mikill, kerfin eru dýr og þjálfun starfsmanna tekur gríðarlegan tíma og þolinmæði, samanber það sem ég hef nú þegar talið upp hér að ofan. Skólamenning og verkferlar áætlana uppi í skýjunum er áskorun sem erfitt er að setja sig inn í án þess að hafa reynt það.
Það væri einnig fullkomlega óeðlilegt ef skóla- og frístundasvið gæti hafið slíkt þróunarstarf án þess að fullnægjandi námskrá, áætlanir og verklag sé ítarlega rökstutt og útfært samkvæmt stefnu slíks skóla og hvernig fyrirhugað er að ná árangri. Mennta- og barnamálaráðuneytið hlýtur að gera sömu kröfur til Reykjavíkurborgar og gerðar voru til okkar að þessu leyti.
Athygli vekur að ekki hefur verið leitað til Ásgarðsskóla á neinn hátt í þessum undirbúningi, ekki óskað eftir að skoða útfærslur á samstarfi og samningi byggðum á þeirri vinnu ásamt kostnaðarliðum. Þrátt fyrir einstakan árangur og reynslu okkar af uppbyggingu Ásgarðsskólans hefur engin tilraun verið gerð til að óska eftir samstarfi eða viðræðum um þróun þessa fyrirhugaða úrræðis Reykjavíkurborgar.
Við töldum að við myndum vinna áfram með 20-25 börn fyrir Reykjavíkurborg, jafnvel fleiri eftir að samningagerð lyki. Það kom því algjörlega flatt upp á okkur þegar fréttir vikunnar og bókun Skóla- og frístundasviðs bárust okkur til eyrna, því ekki fengum við neinar upplýsingar um þessi áform fyrr, þótt að verulega styttist í næsta skólaár.
Þegar farið var að grennslast fyrir kom einnig í ljós að allar umsóknir foreldra um skólavist í Ásgarðsskóla hefðu verið stoppaðar og má af því merkja að beina eigi öllum nemendum Reykjavíkurborgar í nýja úrræðið. Við verðum að setja veruleg spurningamerki við slíka starfshætti. Fyrir jafn viðkvæman nemendahóp og sérhæfðan málaflokk þarf að vanda betur vel til verka.
Við höfum lagt okkur fram um að vanda inntöku nemenda, vera þess fullviss að skólinn væri heppilegt úrræði fyrir viðkomandi og að öll í umhverfi nemandans væru sammála því. Um það bil 17 nemendur af 50 eru með farsældateymi í kringum sig og fá að auki stuðning frá sérfræðingum skólans. Samstarf við nærumhverfi barnanna er stöðugt, ítarlegt og metnaðarfullt og á þetta við um öll börnin sem þess þurfa. Ásgarðsskóli er með skrifstofu í Reykjavík, þangað koma foreldrar af suðvesturhorninu, fá aðstoð og kennarar hitta nemendur í persónulegu umhverfi þegar á þarf að halda. Staðlotur eru reglulegar þar sem nemendur og kennarar hittast til að efla félagsleg tengsl. Rökin um að Reykjavíkurborg verði að veita þjónustuna í sínu nærumhverfi, með vísan í að Ásgarðsskóli sé ekki fær um það, standast því ekki.
Skiljanlegra væri ef Reykjavíkurborg ætlaði sér að bjóða upp á einhverskonar blöndu af stað- og fjarnámi fyrir yngri nemendur og þau sem sýna byrjunareinkenni skólaforðunar og ef ljóst er í hvað stefnir. En eins og gögnin líta út, sem lögð voru fram í vikunni í skóla- og frístundaráði, sé ég ekki betur en að fyrirhugað sé að öll börn borgarinnar eigi að fara í nýja úrræðið hvort sem þau eru nú þegar t.d. nemendur í Ásgarðsskóla eða ekki. Þetta er að vísu aðeins lestur milli lína í fundargerð, en þar sem skóla- og frístundasvið hefur dregið á langinn öll samtöl við Ásgarðsskóla um áframhald okkar verulega árangursríka samstarfs höfum við ekki aðrar upplýsingar.
Ef foreldrar eða barnavernd óska eftir að unglingar í Reykjavík fái að njóta skólavistar í Ásgarðsskóla væri það óskiljanlegt með öllu ef Reykjavíkurborg tæki ákvörðun um að banna val milli Ásgarðsskóla og nýja úrræðisins.
Mikið hefur verið skrifað um vanda grunnskólanna í Reykjavíkurborg. Ég vona að fyrirhugað netúrræði borgarinnar verði ekki til þess að börnum í tuga eða hundraðatali verði gert að sitja heima og þau fjarlægð úr skólunum vegna þess að þar séu kennarar og skólastjórnendur bugaðir á ástandinu.
Við viljum benda á þær alvarlegu afleiðingar sem geta orðið ef kastað er á glæ þeim lífsbjargandi árangri sem hefur náðst með nemendum okkar. Ég biðla til ykkar sem að málinu koma að ígrunda málið vel áður en lokaákvörðun verður tekin um að útiloka Ásgarðsskóla sem úrræði. Reikningsdæmið eins og það er sett upp í greinargerð málsins stenst ekki, ég get fullyrt það. Við erum búin að fjármagna þróunina, hún er verulega sérhæfð og metnaðarfull og það mun taka ykkur mörg ár og kosta margfaldar þessar 60 milljónir sem þið teljið að námið muni kosta. Það er fullkomlega óraunhæft að sú upphæð verði heildarkostnaðurinn, þ.e.a.s ef fyrirhugað er að ná árangri. Við höfum verið með þrjá kennara, skólastjóra, námskrárstjóra, náms- og starfsráðgjafa, skólahjúkrunarfræðing, fjármálastjóra og sálfræðing og auk þess sérstakan starfsmann sem skrifar námsefni fyrir hópinn út frá námskránni. Þar að auki höfum við bæði þróað sjálf og tryggt okkur aðgengi að sérþekkingu og efni sérhæfðu fyrir fjarskóla.
Við höfum aldrei innheimt hjá Reykjavíkurborg aukaframlag vegna sérfræðiþjónustu heldur séð um hana alla sjálf, þrátt fyrir að við hefðum skýran rétt á því að fá þann kostnað greiddan. Án efa hafa þeir skjólstæðingar okkar verið í raun mun kostnaðarsamari fyrir sveitarfélögin en einfaldir meðaltalsútreikningar í umræddri greinargerð virðast byggja á. Ásgarðsskóli hefur útvegað börnum tölvur og heyrnartól og skólabúning og greitt fyrir reglulegar staðlotur, efniskostnað og það sem til þarf. Enginn aukakostnaður hefur fallið á foreldra . Allt þetta er ótalið í „servéttu“ útreikningunum borgarinnar sem fylgja greinargerðinni. Stefna, sýn og helstu verkþættir eru jafnframt alveg óljós í greinargerðinni.
Ásgarður skólaráðgjöf hefur árum saman reynt að opna augu íslenskra sveitarfélaga fyrir því að viðkvæmustu skjólstæðingum skólakerfisins verður að mæta með fjölbreyttari og mun metnaðarfyllri hætti en löngum hefur verið gert, ekki bara í Ásgarðsskóla heldur í öllum skólum landsins. Rúmlega 20 sveitarfélög hafa treyst okkur fyrir sínum viðkvæmustu nemendum með skólavist í Ásgarðsskóla.
Við fögnum því aukinni athygli Reykjavíkurborgar á málaflokknum og viðurkenningu á því sem Ásgarðsskóli hefur barist fyrir. Við erum stolt af okkar hugsjón og árangri og skorum eindregið á skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar að vinna af heilindum að áframhaldandi samstarfi við Ásgarðsskóla í stað þess að kippa einhliða undan þeim stoðum sem rekstur og starfsemi skólans byggist á og útlit er fyrir nú.
Bkv.
Kristrún Lind Birgisdóttir
Skólastjóri og eigandi Ásgarðs - skóla í skýjunum og Ásgarðs skólaráðgjafaþjónustu
S: 8999063 - www.asgardsskoli.is
Hafnarstræti 49
600 Akureyri
Gögn
https://www.ruv.is/frettir/innlent/2025-03-27-skola-og-fristundarad-reykjavikur-samthykkir-tilraunaverkefni-um-fjarnam-i-grunnskolum-439972
https://reykjavik.is/fundargerdir/skola-og-fristundarad-fundur-nr-289
https://fundur.reykjavik.is/sites/default/files/agenda-items/289_5.1%20Tillaga%20um%20fjarkennslu%20%C3%AD%20grunnsk%C3%B3la.pdf
https://www.visir.is/g/20252707777d/sjalfstaedir-grunnskolar-i-haettu

Í nýlegu hlaðvarpsviðtali Ásgarðs um menntamál ræddi Kristrún við Gunnar Gíslason, forstöðumann Miðstöðvar skólaþróunar við Háskólann á Akureyri, um eitt umdeildasta en jafnframt mikilvægasta viðfangsefni íslensks skólastarfs: læsi barna og ungmenna. Samræðan var ekki aðeins yfirferð á kennsluaðferðum heldur gagnrýnin skoðun á því hvernig við skiljum læsi, hvernig við styðjum kennara og hvernig opinber umræða hefur einfaldað of flókin menntamál. Umræðan hófst á hljóðaaðferðinni, þeirri aðferð sem flestir Íslendingar þekkja úr eigin skólagöngu og sem enn er hornsteinn lestrarkennslu í íslenskum grunnskólum. Í grunninn felst hún í því að börn læra tengsl stafa og hljóða, ná tökum á einingum málsins og læra smám saman að hljóða sig í gegnum orð. Gunnar bendir á að þessi aðferð hafi verið við lýði í áratugi og sé enn notuð í nánast öllum skólum landsins. Þar er enginn ágreiningur. Ágreiningurinn hefst hins vegar þegar tæknileg lesfærni er sett jafnt og læsi í víðari merkingu. Að geta hljóðað sig í gegnum orð er mikilvægt fyrsta skref, en það eitt tryggir hvorki lesskilning né hæfni til að nota texta í merkingarbæru samhengi. Börn geta lesið orð án þess að skilja þau, rétt eins og þau geta sagt setningar án þess að tengja þær við eigin reynslu eða hugsun. Þar liggur kjarni vandans: ef skólinn stoppar við tæknilega færni, án þess að byggja ofan á hana merkingu, samræður, ritun og gagnrýna hugsun, verður læsið brothætt og ófullnægjandi. Í þessu samhengi kemur Byrjendalæsi til sögunnar – og sá misskilningur sem lengi hefur fylgt hugtakinu. Í opinberri umræðu hefur Byrjendalæsi gjarnan verið sett fram sem andstæða hljóðaaðferðar eða jafnvel sem heildræn aðferð sem hafi verið afsönnuð í alþjóðlegum rannsóknum. Gunnar hafnar þessari framsetningu alfarið. Byrjendalæsi er ekki heildaraðferð í þeim skilningi að hljóðaaðferð sé lögð til hliðar. Þvert á móti byggir Byrjendalæsi á samvirkni þar sem hljóðaaðferðin er grunnurinn en ofan á hana bætast fjölbreyttir þættir sem gera læsi að lifandi og merkingarbæru námi. Í Byrjendalæsi er gert ráð fyrir því að lestur, ritun, hlustun, tjáning og samræður fléttist saman frá fyrsta degi. Börn læra ekki aðeins að lesa orð, heldur að ræða texta, tengja hann við eigið líf, skapa eigin texta og þróa skilning á því hvernig tungumálið virkar í mismunandi aðstæðum. Þessi nálgun gerir ráð fyrir virkri þátttöku nemenda og krefst fagmennsku kennara. Hún er ekki einföld „aðferð“ sem hægt er að innleiða með námskeiðum einum saman, heldur heildstætt kennsluskipulag sem kallar á stöðuga starfsþróun, samráð og ígrundun. Í samtalinu er einnig dregið skýrt fram hversu mikilvægt er að skólakerfið viðurkenni að börn koma í skólann með ólíkan bakgrunn og ólíka stöðu í læsi. Sum börn hefja skólagöngu þegar þau eru þegar orðin tæknilega læs, á meðan önnur hafa lítið sem ekkert forskot. Þegar öllum er mætt með sömu innlögn, án tillits til stöðu eða þarfa, skapast hætta á að sum börn staðni á meðan önnur dragist aftur úr. Sérstaklega er varað við því að börn sem eru tilbúin í dýpri læsisvinnu sitji áfram í stafainnlögn sem þau hafa þegar náð tökum á, í stað þess að fá að þróa lesskilning, ritun og gagnrýna hugsun. Þessi umræða tengist beint spurningum um áhuga barna og tengsl þeirra við skólastarf. Gunnar og Kristrún ræða sérstaklega hvernig skólaforðun og áhugaleysi, ekki síst meðal drengja, getur átt rætur í því að viðfangsefni námsins tengist ekki reynsluheimi nemenda. Þegar börn sjá ekki tilgang með því sem þau eru að gera kviknar hvorki innri hvöt né löngun til að læra. Þar verður læsi ekki aðeins kennslufræðilegt viðfangsefni heldur spurning um tengsl, merkingu og menningu. Eitt sterkasta stef samtalsins er hugmyndin um læsi sem samfellt ferli en ekki afmarkaðan áfanga á yngsta stigi. Of oft hefur umræðan um læsi einskorðast við fyrstu skólaárin, líkt og vandinn leysist sjálfkrafa þegar börn hafa lært að lesa. Gunnar bendir á að reynslan sýni annað. Dýfan í læsisárangri virðist oft hefjast eftir yngsta stig, þegar gert er ráð fyrir að nemendur séu orðnir læsir og geti sjálfir unnið úr texta í vinnubókum og verkefnum. Þar vantar markvissa kennslu í lesskilningi, hugtakavinnu og textatúlkun, sem eru lykilforsendur þess að nemendur nái árangri síðar í námi. Í þessu ljósi verður starfsþróun kennara lykilatriði. Byrjendalæsi, eins og það er þróað og stutt af Miðstöð skólaþróunar, er ekki kynnt sem ríkisaðferð heldur sem valkostur sem skólar taka upp á faglegum forsendum. Þar er lögð áhersla á gæðaviðmið, sjálfsmat, ytra mat og stöðugan stuðning. Skólar sem taka þátt eru heimsóttir, kennslustundir skoðaðar og samtal átt um það hvernig bæta megi starf. Markmiðið er ekki að stimpla eða refsa heldur að byggja upp faglegt lærdómssamfélag þar sem kennarar fá raunverulegan stuðning í starfi sínu. Samtalið víkkar síðan út sjónarhornið enn frekar og beinir athyglinni að samfélagslegum forsendum læsis. Þar ber sérstaklega á góma skort á fjölbreyttu lesefni fyrir börn og ungmenni á íslensku. Þegar unglingar lesa af ástríðu – til dæmis flókin spilahandrit, sögubækur og texta á mörgum tungumálum – en skólastarfið nær ekki að tengja við þann lestur skapast gjá milli þess læsis sem lifir utan skólans og þess sem skólinn metur og mælir. Þetta vekur spurningar um hvort hefðbundin próf nái í raun að fanga þá hæfni sem börn og ungmenni búa yfir í samtímasamfélagi. Þrátt fyrir gagnrýni og áskoranir er tónn samtalsins ekki svartsýnn. Þvert á móti er bent á að íslenskt skólakerfi skili börnum almennt vel undirbúnum til frekara náms og lífs, hvort sem leiðin liggur í framhaldsskóla, háskóla eða iðn- og verkmenntun. Áskorunin felst ekki í því að gera lítið úr því sem vel er gert, heldur að þora að horfast í augu við það sem má bæta – og gera það á grundvelli rannsókna, fagmennsku og trausts til kennara. Að lokum standa eftir skýr skilaboð: Læsi er ekki spurning um að velja eina aðferð fram yfir aðra, heldur um að byggja upp samfellt, merkingarbært og sanngjarnt skólastarf sem mætir börnum þar sem þau eru stödd. Til þess þarf víðari sýn, meiri stuðning og dýpri umræðu en þá sem of oft hefur einkennt opinbera umræðu um menntamál. Hér er hægt að hlusta á þáttinn í heild sinni

Innra mat í brennidepli – samtal, samvinna og innblástur Tæplega 60 stjórnendur úr leik- og grunnskólum tóku þátt í hagnýtri vinnustofu um innra mat og gæðastarf sem haldin var á Litla Torgi í Háskóla Íslands þann 23. október. Vinnustofan, sem skipulögð var fyrir Samtök sjálfstætt starfandi skóla, var hluti af metnaðarfullum áherslum samtakanna til að efla faglegt samtal, festa góðan starfsanda í sessi og byggja upp sameiginlegt verklag í gæðamálum sjálfstætt starfandi skóla. Markmiðið er að sjálfstætt starfandi skólar ástundi fyrirmyndar gæðastarfshætti og verði leiðandi í gæðamálum á Íslandi. Ráðgjafar Ásgarðs leiddu vinnustofuna þar sem markmiðið var að draga flókin vandamál saman á einblöðung og finna lausnir byggðar á gagnaöflun og betrumbættum starfsháttum. Þátttakendur unnu að fjölbreyttum og skemmtilegum verkefnum í hópum, svo sem að takast á við áskoranir eins og matvendni nemenda eða þegar stór hluti nemenda er enn ólæs við upphaf 2. bekkjar. Hóparnir þróuðu saman hagnýtar lausnir með orðfæri og aðferðum innra mats, með húmor og vaxandi hugarfar að leiðarljósi. Mikill metnaður þátttakanda var augljós sem og einbeittur vilji til að efla skilning á gæðamálum í menntastofnunum, samvinna var virk og þátttakendur óhræddir við að láta ljós sitt skína. Þátttakendur lýstu yfir mikilli ánægju með dagskrána og framsetninguna og sýndu áhuga á frekari stuðningi við innleiðingu gæðastarfs. Ekki skemmdi fyrir að María Ösp Ómarsdóttir, skólastýra í Árbæ, Árborg, lýsti mjög metnaðarfullri innleiðingu gæðastarfs í leikskólanum sínum. Þar hefur Maríu tekist að leiða starfsmannahópinn með miklum metnaði við að innleiða kerfisbundið innra mat á stuttum tíma, samhliða uppbyggingu skólastarfsins. Hún sýndi okkur að gæðastarf byggir á þátttöku starfsfólksins og sameiginlegum skilningi allra á markmiðum þess. Um var að ræða áhrifamikla frásögn af gríðarlega yfirgripsmikilli vinnu sem hefur skilað stöðugu og öruggu gæðastarfi í skólanum. Vinnustofan undirstrikaði mikilvægi samtals, samvinnu og stöðugrar endurskoðunar sem lykilþátta í gæðastarfi sjálfstætt starfandi skóla. Með markvissum aðferðum og samstilltu átaki verður innra mat ekki aðeins formlegt ferli, heldur lifandi verkfæri sem eflir skólastarf og farsæld barna. Við þökkum traustið sem okkur var sýnt með því að fela okkur að leiða þessa vinnustofu. Einnig þökkum við hlý orð og góðar viðtökur því þáttakendur voru ósparir á hrósið og lýstu yfir hversu gagnleg vinnan var. Kristrún, Tinna og Anna María

Í nýjasta hlaðvarpi Ásgarðs ræða Kristrún Lind og Anna María Þorkelsdóttir mikilvægi kennsluáætlana í grunnskólum og þá staðreynd að þær vantar víða. Ný rannsókn Ásgarðs leiddi í ljós að einungis 16% grunnskóla landsins voru með virkar kennsluáætlanir í gildi fyrir haustið 2025 þegar málið var skoðað dagana 10.-14. október. Á þeim tímapunkti er um það bil 20% af skólaárinu þegar liðið. Það er alvarlegt þegar litið er til þess að slíkar áætlanir eru bæði lögbundnar og grundvöllur góðs skólastarfs (1). Kennsluáætlanir eru lykilatriði í gæðastarfi skóla – þær tryggja samfellu í námi, gera nemendum kleift að skilja tilganginn með náminu og gera foreldrum kleift að fylgjast með og styðja börnin sín. Þegar áætlanir eru aðgengilegar á heimasíðu skólans fá bæði foreldrar og yfirvöld innsýn í áherslur í námi, kennslu og ekki síður námsmati (2). Í umræðunni kemur fram að skólum vanti oft leiðbeiningar og stuðning við gerð kennsluáætlana og hvernig má bæta stuðninginn. Einnig kemur fram að í mörgum tilvikum eru kennsluáætlanir geymdar lokaðar inni í kerfum eins og Mentor – sem torveldar gæðastarfi og hindrar samfellu milli árganga. Ásgarður hefur unnið með fjölmörgum skólum að því að þróa sex vikna kennsluáætlanir. Þær tryggja að kennslan sé markviss, heildstæð og í sífelldri endurskoðun. Með sex vikna lotum er auðveldara að meta árangur, færa áherslur og viðhalda gæðum námsins. Eitt helsta vandamál íslenskra grunnskóla er skortur á kerfisbundnum stuðningi við áætlanagerð kennara og styrkri faglegri forystu innan skólanna. Fjárfesta þarf í stuðningi við starfsfólk til að efla gæði skólanna og gagnsæi á starfseminni. Nýr kennari sem kemur inn í skóla ætti að geta gengið að sameiginlegum gögnum og kennsluáætlunum – ekki þurfa að byrja frá grunni. Þessi samfella er lykillinn að fagmennsku, gæðum og vellíðan nemenda og kennara3. Það er auðvitað ekki ásættanlegt að 84% grunnskóla skorti virkar kennsluáætlanir. Góðar áætlanir eru ekki formsatriði – þær eru grunnur að farsæld barna, faglegu skólastarfi og traustu samstarfi heimila og skóla4. Hægt er að hlusta á hlaðvarpið hér í fullri lengd. Kristrún Lind Birgisdóttir Eigandi og ráðgjafi í Ásgarði Heimildir Lög um grunnskóla nr. 91/2008, 29. gr. og 31. gr. Um skólanámskrár og starfsáætlanir grunnskóla. Sótt af: https://www.althingi.is/lagas/nuna/2008091.html ↩ Aðalnámskrá grunnskóla – almennur hluti. (2011). Kafli 12: Skólanámskrá og starfsáætlun skóla, bls. 46–48. Mennta- og menningarmálaráðuneytið. Sótt af: https://www.stjornarradid.is (afrit í eigu notanda) ↩ Reglugerð nr. 1355/2022 um hæfniramma kennara og skólastjórnenda, sérstaklega kafli 5–7 um uppeldis- og kennslufræði, skipulag kennslu og faglegt samstarf. Sótt af: https://island.is/reglugerdir/nr/1355-2022 ↩ Aðalnámskrá grunnskóla – almennur hluti (2011), kafli 1.3 og 7.5. Þar er lögð áhersla á fagmennsku kennara, mikilvægi skólabrags og upplýsingagjöf til foreldra. ↩

