Esther ræðir um námsumverfi á ráðstefnu félags fagfólks í frístundaþjónustu
Kristrún Birgisdóttir • 29. nóvember 2024
Sérhæft námsumhverfi fyrir börn - ráðstefna um leiðir til að koma til móts við fjölbreyttar þarfir
Ásgarðsskóli skóli í skýjunum er verkefni sem við erum mjög stolt af að hafa komið á fót. Ásgarðsskóli er rekinn af systurfélagi ráðgjafarþjónustunnar Ásgarðs. 
Þróunarskólar fara í gegnum nálarauga sérfræðinga barna- og menntamálaráðuneytisins en sú vinna hefur staðið allt frá árinu 2020. Enn er skólinn rekinn á þróunarskólaleyfi menntamálaráðuneytisins en við erum vongóð um að á yfirstandandi skólaári náist að koma rekstri skólans í örugga og varanlega höfn. 
 
 Innra mat skólans og ytra mat barna- og menntamálaráðuneytisins sýnir að staða skólans er framúrskarandi. Allar mælingar er varða gæði náms og kennslu og nálgun á nemendamálum er samkvæmt úttektum til fyrirmyndar. Við erum gríðarlega stolt af þeim ummælum. Viðskiptavinir okkar eru sveitarfélög og foreldrar um allt land sem hafa gefið skólanum ótrúlega falleg og mikilvæg meðmæli sem öll byggja á raunverulegum hetjusögum nemenda. 
 
 Háskólanemendur hafa fylgst með og rannsakað hluta af starfinu og hér ná ummæli nemenda við Menntavísindasvið Háskóla Íslands vel utanum það sem við viljum standa fyrir.  "Það er ljóst að kennslufræðileg forysta er sterkasti hæfileiki skólastjórans og í raun allra stjórnenda í Skólanum í skýjunum. Skólastjórinn, og jafnframt allir stjórnendur sem koma að starfi skólans, hafa gríðarlega sterk fagleg gildi og vinna vinnuna sína með eindæmum vel." "Á meðan Skólinn í skýjunum er starfandi í þeirri mynd sem hann er í núna geta foreldrar og forráðamenn (og aðrir sem að málunum koma) í það allra minnsta verið vissir um að nemendur sem þurfa á því að halda geta sótt menntun á hæsta gæðastigi í fjarnámi... ". 
 
 Úti á vettvangi eru börn merkt því ósanngjarna og ómerkilega hugtaki “skólaforðun”. Þetta er ekki vandamál barnanna þau koma úr stofnunum sem mæta ekki þeirra þörfum eða geta ekki mætt þeirra þörfum. Við erum með nemendur sem þurfa sérhæft námsumverfi um einhvern tíma til þess að ná vopnum sínum og við erum stolt að geta mætt þeim þar. 
 
 Ester Ösp Valdimarsdóttir skólastjórinn okkar kom fram á fjarfundi hjá Félagi fagfólks í frístundaþjónustu um málefni þessa hóp. Við mælum með að öll hlusti við tækifæri. 
 
 Fyrirlesturinn má horfa á hér: Upptaka
 

Innra mat í brennidepli – samtal, samvinna og innblástur                                                              Tæplega 60 stjórnendur úr leik- og grunnskólum tóku þátt í hagnýtri vinnustofu um innra mat og gæðastarf sem haldin var á Litla Torgi í Háskóla Íslands þann 23. október.                               Vinnustofan, sem skipulögð var fyrir Samtök sjálfstætt starfandi skóla, var hluti af metnaðarfullum áherslum samtakanna til að efla faglegt samtal, festa góðan starfsanda í sessi og byggja upp sameiginlegt verklag í gæðamálum sjálfstætt starfandi skóla.                               Markmiðið er að sjálfstætt starfandi skólar ástundi fyrirmyndar gæðastarfshætti og verði leiðandi í gæðamálum á Íslandi.                                                              Ráðgjafar Ásgarðs leiddu vinnustofuna þar sem markmiðið var að draga flókin vandamál saman á einblöðung og finna lausnir byggðar á gagnaöflun og betrumbættum starfsháttum.                               Þátttakendur unnu að fjölbreyttum og skemmtilegum verkefnum í hópum, svo sem að takast á við áskoranir eins og matvendni nemenda eða þegar stór hluti nemenda er enn ólæs við upphaf 2. bekkjar. Hóparnir þróuðu saman hagnýtar lausnir með orðfæri og aðferðum innra mats,  með húmor og vaxandi hugarfar að leiðarljósi.                                                              Mikill metnaður þátttakanda var augljós sem og einbeittur vilji til að efla skilning á gæðamálum í menntastofnunum, samvinna var virk og þátttakendur óhræddir við að láta ljós sitt skína.                                                              Þátttakendur lýstu yfir mikilli ánægju með dagskrána og framsetninguna og sýndu áhuga á frekari stuðningi við innleiðingu gæðastarfs.                                                              Ekki skemmdi fyrir að María Ösp Ómarsdóttir, skólastýra í Árbæ, Árborg, lýsti mjög metnaðarfullri innleiðingu gæðastarfs í leikskólanum sínum.                               Þar hefur Maríu tekist að leiða starfsmannahópinn með miklum metnaði við að innleiða kerfisbundið innra mat á stuttum tíma, samhliða uppbyggingu skólastarfsins. Hún sýndi okkur að gæðastarf byggir á þátttöku starfsfólksins og sameiginlegum skilningi allra á markmiðum þess.                       Um var að ræða áhrifamikla frásögn af gríðarlega yfirgripsmikilli vinnu sem hefur skilað stöðugu og öruggu gæðastarfi í skólanum.                                                                         Vinnustofan undirstrikaði mikilvægi samtals, samvinnu og stöðugrar endurskoðunar sem lykilþátta í gæðastarfi sjálfstætt starfandi skóla.                               Með markvissum aðferðum og samstilltu átaki verður innra mat ekki aðeins formlegt ferli, heldur lifandi verkfæri sem eflir skólastarf og farsæld barna.                                                              Við þökkum traustið sem okkur var sýnt með því að fela okkur að leiða þessa vinnustofu.                               Einnig þökkum við hlý orð og góðar viðtökur því þáttakendur voru ósparir á hrósið og lýstu yfir hversu gagnleg vinnan var.                                                              Kristrún, Tinna og Anna María
 

Í nýjasta hlaðvarpi Ásgarðs ræða Kristrún Lind og Anna María Þorkelsdóttir mikilvægi kennsluáætlana í grunnskólum og þá staðreynd að þær vantar víða. Ný rannsókn Ásgarðs leiddi í ljós að einungis 16% grunnskóla landsins voru með virkar kennsluáætlanir í gildi fyrir haustið 2025 þegar málið var skoðað þann dagana 10.-14. október. Á þeim tímapunkti er um það bil 20% af skólaárinu þegar liðinn. Það er alvarlegt þegar litið er til þess að slíkar áætlanir eru bæði lögbundnar og grundvöllur góðs skólastarfs (1).                     Kennsluáætlanir eru lykilatriði í gæðastarfi skóla – þær tryggja samfellu í námi, gera nemendum kleift að skilja tilganginn með náminu og gera foreldrum kleift að fylgjast með og styðja börnin sín. Þegar áætlanir eru aðgengilegar á heimasíðu skólans fá bæði foreldrar og yfirvöld innsýn í áherslur í námi, kennslu og ekki síður námsmati (2).                               Í umræðunni kemur fram að skólum vanti oft leiðbeiningar og stuðning við gerð kennsluáætlana og hvernig má bæta stuðninginn. Einnig kemur fram að í mörgum tilvikum eru kennsluáætlanir geymdar lokaðar inni í kerfum eins og Mentor – sem torveldar gæðastarfi og hindrar samfellu milli árganga.                               Ásgarður hefur unnið með fjölmörgum skólum að því að þróa sex vikna kennsluáætlanir. Þær tryggja að kennslan sé markviss, heildstæð og í sífelldri endurskoðun. Með sex vikna lotum er auðveldara að meta árangur, færa áherslur og viðhalda gæðum námsins.                               Eitt helsta vandamál íslenskra grunnskóla er skortur á kerfisbundnum stuðningi við áætlanagerð kennara og styrkri faglegri forystu innan skólanna. Fjárfesta þarf í stuðningi við starfsfólk til að efla gæði skólanna og gagnsæi á starfseminni. Nýr kennari sem kemur inn í skóla ætti að geta gengið að sameiginlegum gögnum og kennsluáætlunum – ekki þurfa að byrja frá grunni. Þessi samfella er lykillinn að fagmennsku, gæðum og vellíðan nemenda og kennara3.                               Það er auðvitað ekki ásættanlegt að 84% grunnskóla skorti virkar kennsluáætlanir. Góðar áætlanir eru ekki formsatriði – þær eru grunnur að farsæld barna, faglegu skólastarfi og traustu samstarfi heimila og skóla4.                                           Hægt er að hlusta á hlaðvarpið hér í fullri lengd.                                                                                    Kristrún Lind Birgisdóttir                               Eigandi og ráðgjafi í Ásgarði                                                                          Heimildir                                          Lög um grunnskóla nr. 91/2008, 29. gr. og 31. gr. Um skólanámskrár og starfsáætlanir grunnskóla. Sótt af: https://www.althingi.is/lagas/nuna/2008091.html ↩                                                              Aðalnámskrá grunnskóla – almennur hluti. (2011). Kafli 12: Skólanámskrá og starfsáætlun skóla, bls. 46–48. Mennta- og menningarmálaráðuneytið. Sótt af: https://www.stjornarradid.is (afrit í eigu notanda) ↩                                                              Reglugerð nr. 1355/2022 um hæfniramma kennara og skólastjórnenda, sérstaklega kafli 5–7 um uppeldis- og kennslufræði, skipulag kennslu og faglegt samstarf. Sótt af: https://island.is/reglugerdir/nr/1355-2022 ↩                                                              Aðalnámskrá grunnskóla – almennur hluti (2011), kafli 1.3 og 7.5. Þar er lögð áhersla á fagmennsku kennara, mikilvægi skólabrags og upplýsingagjöf til foreldra. ↩
 

Haustið er búið að vera líflegt og hefur einkennst af því að hjálpa skólum við að koma skipulagi á framsetningu og skipulagi á námi og kennslu. Námsvísar hafa í gegnum tíðina orðið að lykilverkfæri í því ferli. Skipulagsvinnan hefst ekki þegar nemendur mæta í skólann að hausti heldur strax að vori, áður en sumarfrí tekur við. Þá koma kennarar og stjórnendur saman til að setja upp grófa áætlun fyrir allt skólaárið. Þetta þýðir að þegar starfsfólk mætir aftur í ágúst er heildarskipulagið tilbúið og hægt er að einbeita sér að því að fínpússa fyrstu tímabilin. Slík nálgun tryggir að nemendur fari í gegnum öll þau viðfangsefni sem áætlað er að vinna með og að ekkert gleymist, óháð því hvernig skólaárið þróast.                                                    Skólaárinu er skipt niður í sex tímabil, hvert um sex vikur og á hverju tímabili er einn grunnþáttur menntunar hafður að leiðarljósi. Kennarar hengja kennsluáætlanir sínar á námsvísi (ársskipulag), sem tryggir bæði samræmi og gagnsæi. Þessi skipting í styttri lotur hefur reynst afar árangursrík. Hún hjálpar nemendum að sjá skýrari ramma utan um námið sitt og gefur kennurum betri yfirsýn yfir hæfniviðmið, námsmarkmið og matsviðmið. Þannig verður leiðsagnarmat skilvirkara og markmið námsins yfirstíganlegra.                                                              Á fundi sem haldinn var á vegum Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu á dögunum um skipulag náms, kennslu og mats í hæfnimiðuðu skólastarfi var þessi nálgun sérstaklega kynnt. Þar var mælst til þess að skólar skipuleggi nám og kennslu í 6–8 vikna tímabilum til að auðvelda yfirsýn, gera viðmiðin skýrari og stuðla að skilvirkara námi. Með þessum hætti verður námið markvissara, nemendur taka virkan þátt í eigin framvindu og kennarar hafa betra aðhald í sínum undirbúningi.                                                              Sumir skólar eru nýbúnir að taka upp þessa skipulagningu, en aðrir hafa unnið með hana árum saman. Reynsluboltarnir hafa þróað skýrar aðferðir til að nýta skipulagið, en það sem sameinar alla er sú sannfæring að ársskipulagið sé orðið að lykilatriði í gæðastarfi. Dæmi um skóla sem hafa tekið upp skýrt ársfyrirkomulag eru:                                                        Auðarskóli                                     Ásgarðsskóli                                     Bíldudalsskóli                                     Eldhamrar                                     Giljaskóli                                     Grunnskóli Bolungarvíkur                                     Grunnskóli Fjallabyggðar                                     Grunnskóli Grundarfjarðar                                     Grunnskóli Hólmavíkur                                     Grunnskóli Húnaþings vestra                                     Grunnskóli Önundarfjarðar                                     Grunnskólinn á Suðureyri                                     Grunnskólinn á Þingeyri                                     Grunnskólinn í Stykkishólmi                                     Höfðaskóli                                     Lækjarbrekka                                     Leikskóli Dalabyggðar                                     Patreksskóli Araklettur                                     Reykhólaskóli                                     Sólvellir                                     Tálknafjarðarskóli                                                      Fleiri skólar hafa auk þess tekið upp svokallaða þriggja ára rúllu. Það þýðir að þeir skipuleggja kennsluna með langtímasýn, þar sem áherslur hvers árs eru skýrar og tryggt er að öll markmið aðalnámskrár grunnskóla séu uppfyllt. Þannig missir enginn skóli sjónar á heildarmyndinni og nemendur fá samfellu í náminu sem nær yfir lengri tíma.                                                              Ávinningurinn fyrir nemendur er augljós. Þeir fá skýrari mynd af því sem þeir eru að vinna að í hverju tímabili, fá reglulega og markvissa endurgjöf frá kennurum sínum og upplifa að námsefnið er sett fram í viðráðanlegum einingum. Fyrir foreldra skapar þetta aukið traust, því ársskipulagið tryggir að börnin þeirra fái fjölbreytt og vel uppbyggt nám. Fyrir kennara veitir þetta aðhald og hagræðingu, og fyrir skólasamfélagið í heild felur það í sér meiri festu og fagmennsku.                                                              Með þessum vinnubrögðum verður skólinn ekki bara staður þar sem börn læra, heldur samfélag sem byggir á skýrum markmiðum, traustu skipulagi og góðu samstarfi allra aðila.
 

